Norðurál hefur starfað síðan 1998 og er staðsett á iðnaðarsvæðinu á Grundartanga við Hvalfjörð. Verksmiðjan framleiðir ál sem nýtist í margs konar iðnaði, til dæmis í bílaframleiðslu og öðrum framleiðslugreinum þar sem krafist er sterks og léttra efnis.
Fyrirtækið hefur lagt áherslu á stöðuga framfarastjórnun, öryggi í rekstri og gæðavottanir tengdar framleiðsluferlum sínum. Það vinnur náið með orkufyrirtækjum að öruggri afhendingu endurnýjanlegrar orku og tekur þátt í rannsóknar- og þróunarverkefnum sem lúta að minni losun og bættri framleiðslutækni. Starfsemi álversins skapar fjölmörg störf á Vesturlandi og styður við tengda þjónustu og atvinnustarfsemi á svæðinu.
Century Aluminum festi kaup á Norðuráli í apríl 2004 en áður var fyrirtækið dótturfyrirtæki Columbia Ventures Corporation (CVC) sem er í eigu Kenneth D. Peterson Jr. Century Aluminum er með höfuðstöðvar í Monterey í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði hóf rekstur árið 2007. Fjarðaál er eitt nútímalegasta og tæknivæddasta álver í heimi og er til fyrirmyndar hvað varðar umhverfisvernd. Álverið er það stærsta á Íslandi en framleiðslugeta þess er allt að 360 þúsund tonn af áli á ári.
Alcoa Fjarðaál sf. er í eigu Alcoa, Inc. sem er einn stærsti álframleiðandi heims með starfsstöðvar í 31 landi víðs vegar um heiminn og um 57 þúsund starfsmenn. Fyrirtækið var stofnað árið 1888 og eru höfuðstöðvar þess í Pittsburgh í Pennsylvaníufylki í Bandaríkjunum. Þegar álver fyrirtækisins á Reyðarfirði var reist hafði Alcoa ekki byggt nýtt álver í rúm 20 ár. Ekkert var til sparað til að það gæti orðið eitt fullkomnasta álver heims.
Sjálfbærniverkefni Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar var komið á til að fylgjast með áhrifum framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun og álverið í Reyðarfirði á samfélag, umhverfi og efnahag á Austurlandi. Vöktun hefur staðið yfir frá árinu 2007. Austurbrú hefur haldið utan um verkefnið frá árinu 2013 og má nálgast mikinn fróðleik á heimasíðu verkefnisins.
Rio Tinto á Íslandi er staðsett í Straumsvík og er það elsta álver landsins.
Samningar um byggingu álvers á Íslandi voru undirritaðir árið 1966, en viðræður milli svissneska fyrirtækisins Alusuisse og ríkisstjórnar Íslands höfðu þá staðið yfir í nokkur ár. Íslenska álfélagið hf. var stofnað og framkvæmdir hófust í Straumsvík. Þremur árum síðar hófst framleiðsla en verksmiðjan var formlega vígð í maí 1970. Framleiðslugeta álversins var í upphafi um 33.000 tonn á ári í 120 kerum, en síðan hefur verksmiðjan verið stækkuð fjórum sinnum.
Álverið í Straumsvík er rekið af Rio Tinto Alcan á Íslandi hf. sem er hluti af Rio Tinto, einum stærsta álframleiðanda í heimi og alþjóðlegu námafélagi með höfuðstöðvar í London. Félagið var stofnað árið 1873 utan um koparvinnslu á Spáni. Álsvið félagsins nefnist Rio Tinto. Rio Tinto er stærsti álframleiðandi heims auk þess að vera leiðandi í pökkunariðnaði. Höfuðstöðvar Rio Tinto eru í Montreal í Kanada.
ISAL framleiðir hágæðaál í samræmi við óskir viðskiptavina. Fyrirtækið framleiðir fjölmargar málmblöndur í mismunandi stærðum, alls hátt í 200 mismunandi vörutegundir, sem eru fullunnar til völsunar. Álið úr Straumsvík er notað í ýmsar sérhæfðar vörutegundir, svo sem plötur fyrir byggingariðnað, prentplötur, lyfja- og snyrtivöruumbúðir og bifreiðar. Stærstu viðskiptavinir ISAL eru í Þýskalandi en fyrirtækið selur einnig ál til annarra landa.