16. December 2024

Vinna í álverum er líka fyrir konur

Öll störf sem unnin eru í álverum henta bæði konum og körlum. Hlutfall kvenna í álverum á Íslandi er með því hæsta sem þekkist í heiminum og hafa íslensku álverin öll skýrar jafnréttisstefnur.  Ólíkt því sem einhverjir halda eru störf í álverum ekki líkamlega erfið og þannig ættu líkamsburðir ekki að hafa áhrif á getu fólks til að vinna í álverunum.

Störf við álframleiðslu á Íslandi eru vel launuð og er starfsmannavelta allra íslensku álveranna langt undir meðallagi á hverju svæði.  Laun við álframleiðslu eru auk þess góð og samkvæmt Hagstofunni voru meðal heildarlaun starfsfólks í álframleiðslu um 20% hærri en meðal heildarlaun almennt á Íslandi.