12. júní 2024

Álver eru öruggir vinnustaðir

Öryggismál eru forgangsatriði hjá álverum og endurspeglast sú staðreynd í öllu starfi þeirra. Bráðið ál er yfirleitt meðhöndlað við hita í kringum 1000 gráður á Celsíus og það er afar mikilvægt að starfsfólk fylgi réttum verklagsreglum við meðhöndlun þess.

Allt kapp er lagt á að álverin séu slysa- og tjónalausir vinnustaðir og er öryggismenning álvera mjög rík. Þá gildir einu hvort um er að ræða þjónustu við framleiðslu í ker- eða steypuskálum eða hvort það er verið að skipta um ljósaperu í mötuneytinu. Allt á sér staðlaða verkferla og öryggisbúnað við hæfi.

Allt snýst um að draga úr áhættu vegna hita, hávaða, efna, ryks og gufa þar sem starfsfólk fylgir ströngum verkferlum í störfum sínum og ber ávallt hlífðarbúnað við hæfi. Þar má nefna hitaþolinn fatnað, öndunargrímur, augn og andlitshlífar.

Það er mikið lagt upp úr hreinlæti og snyrtimennsku í öllu starfi álveranna, sem er einnig mikilvægur þáttur í öryggi starfsfólks.

Það eru ekki allir vinnustaðir sem tilkynna „næstumþvíslys“ en ef starfsfólk t.d. rennur til og hrasar næstum því – er slíkt skráð og skoðað sérstaklega ef mögulega mætti bæta öryggi enn frekar.